Þungunarrof
læknisfræðilegt inngrip í meðgöngu til að fjarlægja fóstur eða fósturvísi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þungunarrof (áður kallað fóstureyðing) er læknisfræðilegt inngrip í meðgöngu þar sem fósturvísir eða fóstur er fjarlægt á meðan það er enn of ungt til að geta lifað af utan móðurkviðs. Ýmist er gripið inn í með lyfjum eða með aðgerð.
Þungunarrof sem fram fer á sjúkrahúsum eða læknastofum eru mjög áhættulítið,[1][2] þó því fylgi oft blæðing úr leggöngum og ógleði. Þungunarrof er um 13 sinnum öruggari en barnsfæðing.[3][4]
56 milljón þungunarrof eru framkvæmd á ári í heiminum,[5] nærri því helmingur þeirra er gerður af fólki sem skortir sérkunnáttu eða fylgir ekki hreinlætiskröfum.[6]