Alfred Hermann Fried
Austurrískur blaðamaður og friðarsinni / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alfred Hermann Fried (11. nóvember 1864 – 5. maí 1921) var austurrískur blaðamaður og friðarsinni sem var virkur á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina.
Alfred Hermann Fried | |
---|---|
Fæddur | 11. nóvember 1864 |
Dáinn | 5. maí 1921 (56 ára) |
Þjóðerni | Austurrískur |
Störf | Blaðamaður |
Trú | Gyðingdómur |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1911) |
Fried stofnaði tímaritið Die Friedens-Warte, sem talaði fyrir friðarhyggju í anda stefnuskrár Frieds, Grundlagen des Revolutionären Pazifismus (1908). Fried vann ásamt Berthu von Suttner í Friðarhreyfingu Þýskalands og Austurríkis og stofnaði Friðarbandalag fjölmiðla í apríl árið 1909 í Vín. Fried flúði til Sviss á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Árið 1911 hlaut hann friðarverðlaun Nóbels ásamt Tobias Asser fyrir störf sín í þágu friðar.
Fried var jafnframt talsmaður fyrir esperantó. Hann var höfundur kennslu- og orðabókar í tungumálinu ásamt þýsk-esperantó og esperantó-þýskrar orðabókar sem kom út árið 1903 og aftur 1905.