Arabíska
tungumál / From Wikipedia, the free encyclopedia
Arabíska (العربية) er semískt tungumál sem er upprunið á Arabíuskaganum, en breiddist yfir stærra svæði með útbreiðslu Íslams og er nú talað víðast hvar alla leið frá Marokkó til Íraks. Arabíska er eitt helsta sameiningartákn þeirra sem í dag kalla sig Araba sem eru mun fleiri en þeir sem búa á Arabíuskaganum.
Arabíska العربية Arabiyya | ||
---|---|---|
Málsvæði | Alsír, Barein, Egyptaland, Írak, Jemen, Jórdanía, Katar, Kúveit, Líbanon, Líbýa, Máritanía, Marokkó, Óman, Palestínuríki, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía, Súdan, Sýrland og Túnis af meirihluta, og töluð í mörgum löndum til viðbótar af minnihluta íbúa. | |
Heimshluti | Miðausturlönd, Norður-Afríka | |
Fjöldi málhafa | 325 milljónir | |
Sæti | 6 (miðað við móðurmál) | |
Ætt | Afró-asísk Semísk | |
Skrifletur | Arabískt stafróf | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Alsír Barein Alþjóðastofnanir: | |
Stýrt af | Egyptaland: Arabískuakademían Sýrland: Arabískuakademían í Damaskus | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | ar | |
ISO 639-2 | ara | |
SIL | ABV | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Arabísku má skipta í tvennt, bókmenntaarabísku og talaða arabísku. Sú fyrrnefnda er notuð í formlegu máli af flestum fjölmiðlum og í bókum nær alls staðar þar sem arabíska er töluð og er sú arabíska sem notuð er Kóraninum. Síðarnefnda gerðin skiptist hins vegar í margar mállýskur sem talaðar eru þvert yfir svæðið. Þær eru mjög misjafnar og skiljast jafnvel ekki af þeim sem tala aðrar mállýskur.