Bláskógabyggð
sveitarfélag í uppsveitum Árnessýslu, Suðurlandi, Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Bláskógabyggð er sveitarfélag í uppsveitum Árnessýslu, vestan Hvítár. Til vesturs liggur Grímsnes- og Grafningshreppur. Sveitarfélagið varð til 9. júní 2002 við sameiningu Þingvallahrepps, Laugardalshrepps og Biskupstungnahrepps að afloknum sameiningarkosningum. Skrifstofa er í félagsheimilinu Aratungu sem stendur við Reykholt.
Staðreyndir strax Land, Kjördæmi ...
Bláskógabyggð | |
---|---|
Hnit: 64.2764°N 20.4009°V / 64.2764; -20.4009 | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Suðurkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | |
Stjórnarfar | |
• Sveitarstjóri | Ásta Stefánsdóttir |
Flatarmál | |
• Samtals | 3.300 km2 |
• Sæti | 9. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 1.322 |
• Sæti | 30. sæti |
• Þéttleiki | 0,4/km2 |
Póstnúmer | 801 |
Sveitarfélagsnúmer | 8721 |
Vefsíða | blaskogabyggd |
Loka
Þéttbýlismyndanir eru í Laugarási, Reykholti og á Laugarvatni. Nafn sveitafélagsins er dregið af landssvæði í kringum Þingvallavatn sem kallast Bláskógar.