Demókrataflokkurinn
Bandarískur stjórnmálaflokkur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Demókrataflokkurinn er bandarískur stjórnmálaflokkur, annar þeirra tveggja stærstu sem skiptast á að fara með völdin þar í landi en hinn er Repúblikanaflokkurinn. Fylgismenn Demókrataflokksins er gjarnan kallaðir demókratar (orðið merkir „lýðræðissinni“). Í bandarískum stjórmálum er Demókrataflokkurinn skilgreindur sem vinstra megin við Repúblikana en stefna hans er þó ekki jafn vinstrisinnuð og stefna hefðbundinna sósíaldemókrata eða verkamannaflokka í mörgum löndum.
Staðreyndir strax Demókrataflokkurinn Democratic Party ...
Demókrataflokkurinn Democratic Party | |
---|---|
Leiðtogi | Joe Biden (forseti Bandaríkjanna) |
Formaður | Jaime Harrison |
Varaformaður | Keith Ellison |
Ritari | Jason Rae |
Þingflokksformaður | Hakeem Jeffries (Fulltrúadeild) Chuck Schumer (Öldungadeild) |
Stofnár | 8. janúar 1828; fyrir 196 árum (1828-01-08) |
Höfuðstöðvar | 430 South Capitol St. SE, Washington, D.C., 20003 |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Félagsleg frjálslyndisstefna |
Einkennislitur | Blár |
Öldungadeild | |
Fulltrúadeild | |
Vefsíða | http://www.democrats.org |
Loka
Eins og stendur er Demókrataflokkurinn með nauman meirihluta á öldungadeild Bandaríkjaþings en minnihluta á fulltrúadeildinni auk þess sem núverandi forseti Bandaríkjanna, Joe Biden, er meðlimur í flokknum.