Drakúla
skáldsaga eftir Bram Stoker frá árinu 1897 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Drakúla (enska: Dracula) er skáldsaga eftir írska rithöfundinn Bram Stoker sem kom út árið 1897. Aðalillmenni bókarinnar er vampíran, eða blóðsugan, Drakúla greifi sem er byggður á ýmsum þjóðsögum um vampírur. Nafn greifans er fengið frá Vlad Ţepeş sem var kallaður Drăculea („litli dreki“) og var fursti í Vallakíu á 15. öld, en ólíklegt er talið að Stoker hafi nokkuð þekkt til hans annað en nafnið.[1]
Höfundur | Bram Stoker |
---|---|
Upprunalegur titill | Dracula |
Þýðandi | Valdimar Ásmundsson (1901, Makt myrkranna) |
Land | Bretland |
Tungumál | Enska |
Stefnur | Hrollvekja, gotnesk skáldsaga |
Útgefandi | Archibald Constable and Company (UK) |
Útgáfudagur | 26. maí 1897 (fyrir 126 árum) (1897-05-26) |
Drakúla kom fyrst út á íslensku 1901 undir heitinu Makt myrkranna.[2] Árið 2014 kom í ljós að þessi þýðing er talsvert breytt frá upprunalegu skáldsögunni. Þýðandi hennar var Valdimar Ásmundsson. Hann byggði þýðinguna á útgáfu sem birst hafði sem framhaldssaga í sænsku dagblaði undir heitinu Mörkets makter en stytti hana verulega, breytti frásagnarforminu og bætti við vísunum í Íslendingasögur. Makt myrkranna er aðeins þriðjungur af lengd upprunalegu skáldsögunnar. Halldór Laxness talar um þessa þýðingu í einni minningabók, og sumir segja að hún hafi haft mikil áhrif á skáldsögu hans Kristnihald undir Jökli.