Elektra (Sófókles)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Elektra er harmleikur eftir forngríska skáldið Sófókles. Ekki er vitað hvenær hann var saminn en margt bendir til þess að það hafi verið seint á ferli Sófóklesar.
- Þessi grein fjallar um leikrit Sófóklesar. Um leikrit Evripídesar, sjá Elektra.
Leikritið fjallar um Elektru og Órestes, börn Agamemnons og Klýtemnæstru. Elektra hafði forðað bróður sínum frá vísum bana mörgum árum áður, er móðir þeirra myrti föður þeirra við heimkomu hans frá Tróju. Nú hyggur Órestes á hefndir fyrir föðurmorðið.