Fáni Kosta Ríka
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þjóðfáni Kosta Ríka er byggður á hönnun sem gerð var árið 1848. Ríkisfáninn sem notaður er í opinberum erindagjörðum inniheldur skjaldarmerki Kosta Ríka. Borgaraleg útgáfa fánans inniheldur ekki skjaldarmerkið þar sem aðeins ríkisstjórninni er leyft að nota það.
Fáninn var formlega tekinn upp þann 27. nóvember 1906, með minniháttar breytingum á staðsetningu og hönnun skjaldarmerkisins. Fánanum var breytt til samræmis við breytingar á skjaldarmerkinu árin 1964 og 1998.[1] Fáninn er, ásamt hinum, haítíska, bólivíska, ekvadorska og salvadorska, einn fimm þjóðfána þar sem mynd af fánanum birtist á fánanum sjálfum.