Hafnarfjörður
sveitarfélag á höfuðborgarsvæði Íslands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hafnarfjörður er bær á höfuðborgarsvæðinu. Þar bjuggu 30.704 manns 1. apríl árið 2023 og hefur bærinn vaxið gríðarlega á síðustu árum og áratugum líkt og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa gert. Höfnin sem bærinn er kenndur við var ein stærsta verslunarhöfn landsins allt frá 16. öld og mikil útgerð hefur verið stunduð þaðan í sögunni. Á 18. öld var rætt um að gera Hafnarfjörð að höfuðstað Íslands, en slæm samgönguskilyrði þangað, lítil mótekja og lítið undirlendi urðu helstu ástæður þess að Reykjavík varð ofan á í valinu.
Hafnarfjarðarkaupstaður | |
---|---|
Hnit: 64°04′07″N 21°57′25″V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Suðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Hafnarfjörður |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Rósa Guðbjartsdóttir D |
Flatarmál | |
• Samtals | 174 km2 |
• Sæti | 49. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 30.616 |
• Sæti | 3. sæti |
• Þéttleiki | 175,95/km2 |
Póstnúmer | 220, 221, 222 |
Sveitarfélagsnúmer | 1400 |
Vefsíða | hafnarfjordur |
Hafnarfjörður heyrði undir Álftaneshrepp framan af en eftir skiptingu hans árið 1878 varð bærinn hluti hins nýmyndaða Garðahrepps. Hinn 1. júní 1908 fékk Hafnarfjörður kaupstaðarréttindi og varð þá að sjálfstæðu bæjarfélagi. Íbúar voru þá orðnir 1469 talsins.
Skammt vestan Hafnarfjarðarbæjar er Straumsvík þar sem Alcan á Íslandi rekur álver.