Innri-Mongólía
sjálfstjórnarhérað í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Innri-Mongólía (kínverska: 内蒙古; rómönskun: Nèi Měnggǔ) er landlukt sjálfstjórnarhérað í norðurhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Það er víðfeðmt sigðlaga landsvæði, sem teygir sig um 2.400 kílómetra og afmarkast í norðri af landamærunum við lýðveldið Mongólíu. Stór hluti héraðsins eru gresjur og eyðimerkur. Árið 2020 voru Íbúar um 24 milljónir, að mestu Han Kínverjar, en mongólskur minnihluti er fjölmennur. Höfuðborg héraðsins er Hohhot.