John Maynard Keynes
From Wikipedia, the free encyclopedia
John Maynard Keynes, fyrsti baróninn af Keynes (5. júní 1883 – 21. apríl 1946) var mikilsvirtur hagfræðingur, og kenningar hans um að ríkisvaldinu bæri að stýra heildareftirspurninni í samfélaginu höfðu mikil áhrif á hagstjórn í heiminum eftir heimsstyrjöldina fyrri. Frægasta bók hans, Almenna kenningin um atvinnu, vexti og peninga, hefur áhrif enn þann dag í dag á hagfræðina, þó að margir telji kenningar hans ekki hafa staðist tímans tönn. Þær hafa ætíð verið umdeildar.