Karl 16. Gústaf
konungur Svíþjóðar frá 1973 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Karl 16. Gústaf (Carl Gustaf Folke Hubertus, fæddur 30. apríl 1946) er konungur Svíþjóðar og sjöundi sænski konungurinn af Bernadotte-ætt.
Staðreyndir strax
| ||||
Karl 16. Gústaf. | ||||
Ríkisár | 15. september 1973 – | |||
Skírnarnafn | Carl Gustaf Folke Hubertus | |||
Kjörorð | För Sverige – i tiden | |||
Fæddur | 30. apríl 1946 (1946-04-30) (78 ára) | |||
Haga höll, Solna, Stokkhólmi | ||||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Gústaf Adólf erfðaprins | |||
Móðir | Sibylla af Sachsen-Coburg-Gotha | |||
Drottning | Silvia Sommerlath frá Heidelberg í Þýskalandi | |||
Börn |
|
Loka
Hann tók við krúnunni eftir lát afa síns, Gústafs 6. Adólfs, árið 1973, en faðir hans, Gústaf Adólf erfðaprins, fórst í flugslysi þegar Karl Gústaf var aðeins níu mánaða gamall. Hann varð svo krónprins árið 1950 við lát langafa síns, Gústafs 5. Kona Gústafs erfðaprins og móðir Karls Gústafs var Sibylla af Sachsen-Coburg-Gotha.
Karl Gústaf er áhugamaður um bíla og veiðar og tekur mikinn þátt í starfi skátahreyfingarinnar í Svíþjóð. Hann er lesblindur og átti þess vegna í námserfiðleikum en lauk þó stúdentsprófi og stundaði nám við Uppsalaháskóla og Stokkhólmsháskóla.