Kemal Atatürk
Forseti og stofnandi tyrkneska lýðveldisins / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mústafa Kemal Atatürk (19. maí 1881 — 10. nóvember 1938) var stofnandi og fyrsti forseti Lýðveldisins Tyrklands. Hann fór fyrir sæmilega friðsamri byltingu í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar þar sem höfuðborgin var flutt frá Istanbúl til Ankara og soldánaveldið leyst upp. Hann var mikill frömuður í því að gera Tyrkland vestrænna en það hafði verið, meðal annars innleiddi hann latneskt stafróf fyrir tyrknesku og bannaði fjölkvæni. Enn í dag er hann í miklu uppáhaldi hjá mörgum Tyrkjum og myndir af honum hanga víða uppi í skólastofum, stofum og víðar.
Staðreyndir strax Mústafa Kemal Atatürk, Forseti Tyrklands ...
Mústafa Kemal Atatürk | |
---|---|
Forseti Tyrklands | |
Í embætti 29. október 1923 – 10. nóvember 1938 | |
Forsætisráðherra | İsmet İnönü Fethi Okyar Celâl Bayar |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | İsmet İnönü |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 19. maí 1881 Salóniku, Tyrkjaveldi |
Látinn | 10. nóvember 1938 (57 ára) Istanbúl, Tyrklandi |
Þjóðerni | Tyrkneskur |
Stjórnmálaflokkur | Lýðveldisflokkur alþýðunnar (CHP) |
Maki | Lâtife Uşaklıgil (1923–25) |
Undirskrift |
Loka