Knattspyrnudeild ÍBV
From Wikipedia, the free encyclopedia
Knattspyrnudeild ÍBV varð til sumarið 1903 þegar Björgúlfur Ólafsson læknir kom til Vestmannaeyja til að kenna börnum og fullorðnum knattspyrnu og sund, hann setti á laggirnar Fótboltafélag Vestmannaeyja sem fljótlega var endurnefnt í Knattspyrnufélag Vestmannaeyja[1], það keppti meðal annars á fyrsta Íslandsmótinu í knattspyrnu 1912 þá í röndóttum treyjum, hvítum og bláum og síðar í grænum treyjum
Við tilkomu héraðsambanda ÍSÍ fékk liðið nafn hérðassambandsins ÍBV. Knattspyrnudeild ÍBV hefur náð góðum árangri í gegnum tíðina. Innan hennar geta margir aldurshópar æft knattspyrnu undir leiðsögn þjálfara hjá ÍBV.
- Fyrir nánari upplýsingar um félagið sjálft og héraðssambandið sjá Íþróttabandalag Vestmannaeyja
Staðreyndir strax Gælunafn/nöfn, Stytt nafn ...
Íþróttabandalag Vestmannaeyja | |||
Fullt nafn | Íþróttabandalag Vestmannaeyja | ||
Gælunafn/nöfn | Eyjamenn Vestmannaeyjar Vestmannaeyingar | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | ÍBV | ||
Stofnað | 1903; fyrir 121 ári (1903) sem KV | ||
Leikvöllur | Hásteinsvöllur | ||
Stærð | 983 sæti, 2983 alls | ||
Stjórnarformaður | Daníel Geir Moritz | ||
Knattspyrnustjóri | Hermann Hreiðarsson | ||
Deild | Besta deild karla | ||
2021 | 2. sæti | ||
|
Loka
Staðreyndir strax Virkar deildir ÍBV-Íþróttafélags, Önnur ÍBV félög ...
Virkar deildir ÍBV-Íþróttafélags | ||
---|---|---|
Knattspyrna |
Handknattleikur | |
Önnur ÍBV félög | ||
Körfubolti |
Sund |
Frjálsar |
Blak | ||
Aðildarfélög undir öðrum merkjum | ||
Golf |
Fimleikar |
Badminton |
Boccia |
KFS | |
Loka