Leoníd Kútsjma
2. forseti Úkraínu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Leoníd Danylovytsj Kútsjma (f. 9. ágúst 1938) er úkraínskur stjórnmálamaður sem var annar forseti Úkraínu. Hann gegndi forsetaembættinu í tvö kjörtímabil, frá 1994 til 2005, og var áður forsætisráðherra Úkraínu frá 1992 til 1993. Kútsjma varð forseti eftir að hann sigraði sitjandi forsetann Leoníd Kravtsjúk í forsetakosningum árið 1994. Á stjórnartíð Kútsjma batnaði samband Úkraínu við Rússland en spilling jókst hins vegar og ofsóknir á fjölmiðlum og stjórnarandstæðingum færðust í aukana. Kútsjma var því sakaður um einræðiskennda stjórnarhætti sem forseti. Kútsjma er þaulsætnasti forseti Úkraínu og eini forseti landsins sem hefur gegnt meira en einu kjörtímabili.
Staðreyndir strax Forseti Úkraínu, Forsætisráðherra ...
Leoníd Kútsjma Леонід Кучма | |
---|---|
Forseti Úkraínu | |
Í embætti 19. júlí 1994 – 23. janúar 2005 | |
Forsætisráðherra | Vítalíj Masol Jevhen Martsjúk Pavlo Lazarenko Valeríj Pústovojtenko Víktor Júsjtsjenko Anatolíj Kínakh Víktor Janúkovytsj |
Forveri | Leoníd Kravtsjúk |
Eftirmaður | Víktor Júsjtsjenko |
Forsætisráðherra Úkraínu | |
Í embætti 13. október 1992 – 22. september 1993 | |
Forseti | Leoníd Kravtsjúk |
Forveri | Valentyn Symonenko (starfandi) |
Eftirmaður | Júkhym Zvjahílskyj (starfandi) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 9. ágúst 1938 (1938-08-09) (85 ára) Tsjaíkíjne, Novhorod-Síverskyj rajon, úkraínska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Þjóðerni | Úkraínskur |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna (1960–1991) |
Maki | Ljúdmila Talalajeva |
Börn | 1 |
Undirskrift |
Loka