Mikhail Tal
From Wikipedia, the free encyclopedia
Mikhail Tal (rússneska: Михаил Нехемьевич Таль; 9. nóvember 1936 – 28. júní 1992) var lettneskur stórmeistari og áttundi heimsmeistarinn í skák. Hann fæddist í Riga í Lettlandi.
Mikhail Tal | |
---|---|
Fæddur | Mikhail Nekhemievich Tal 9. nóvember 1936 |
Dáinn | 28. júní 1992 |
Þekktur fyrir | skák |
Titill | Stórmeistari, Heimsmeistari |
Tal er einnig þekktur undir nafninu „töframaðurinn frá Riga“ fyrir afar flókinn, taktískan skákstíl og leikfléttur, sem margir líktu við töfrabrögð.
Tal var afar vel liðinn í skákheiminum.[heimild vantar] Til að mynda er minningarmót, Tal Memorial, haldið honum til heiðurs á hverju ári í Moskvu, þar sem margir af sterkustu stórmeisturum heims taka jafnan þátt.
Árið 1960 háði Mikhail Tal, einungis 23 ára gamall, einvígi við þáverandi heimsmeistara, Mikhail Botvinnik um heimsmeistaratitilinn. Tal vann einvígið 12.5-8.5 og varð heimsmeistari í skák í kjölfarið, sá yngsti frá upphafi (Garry Kasparov sló þetta met árið 1985 þegar hann vann titilinn 22 ára gamall). Tal hélt titlinum aðeins í eitt ár þar sem hann tapaði fyrir Botvinnik í einvígi um heimsmeistaratitilinn árið 1961. Tal tefldi aldrei aftur einvígi um heimsmeistaratitilinn, en var í hópi fremstu skákmanna heims allt til dauðadags. Hann tefldi m.a. á fjölmörgum millisvæða- og áskorendamótum og varð margoft skákmeistari Sovétríkjanna sálugu. Hann tefldi margoft á Íslandi, fyrst árið 1957 á heimsmeistaramóti stúdenta.
Tal ritaði bók um fyrra einvígi sitt við Botvinnik sem kom út á vegum Skákprents í íslenskri þýðingu Braga Halldórssonar árið 1975.