Mistur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Mistur kemur fram þegar þurrar og örsmáar rykagnir í lofti draga úr skyggni himinsins. Mistur getur virst ýmist blátt (sem skapar fjallablámann) eða gult þegar það ber við sólu.
Mistur getur litið út mjög svipað léttri þoku, en þoka er vegna vatnsdropa frekar en rykagna og er gráleit.