Moldóva
From Wikipedia, the free encyclopedia
Moldóva er landlukt land í Austur-Evrópu með landamæri að Rúmeníu til vesturs og Úkraínu til norðurs, austurs og suðurs. Í landinu búa um 3,5 milljónir manna og stærð þess nemur um þriðjungi Íslands. Höfuðborgin heitir Kisíná (ritað Chișinău á rúmensku). Tveir þriðju landsmanna tala rúmensku sem er opinbert tungumál landsins.
Republica Moldova | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Limba Noastră | |
Höfuðborg | Kisíná |
Opinbert tungumál | rúmenska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Maia Sandu |
Forsætisráðherra | Dorin Recean |
Sjálfstæði | |
• Frá Sovétríkjunum | 27. ágúst 1991 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
138. sæti 33.846 km² 1,4 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
132. sæti 2.597.100 85,5/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 36,886 millj. dala (134. sæti) |
• Á mann | 14.257 dalir (118. sæti) |
VÞL (2019) | 0.750 (90. sæti) |
Gjaldmiðill | Leu (MDL) |
Tímabelti | UTC +2/+3 |
Þjóðarlén | .md |
Landsnúmer | ++373 |
Landið var frá fornu fari austurhluti furstadæmisins Moldavíu en árið 1812 lét Tyrkjaveldi Rússneska keisaradæminu þennan hluta í té. Landið var þá þekkt sem Bessarabía. Vesturhlutinn varð hluti af Furstadæminu Rúmeníu þegar það varð til árið 1859. Eftir fyrri heimsstyrjöld lagði Rúmenía landið undir sig en Sovétríkin viðurkenndu ekki þau yfirráð. Í síðari heimsstyrjöld lögðu Sovétríkin Bessarabíu aftur undir sig. Moldóva lýsti síðan yfir sjálfstæði eftir hina misheppnuðu valdaránstilraun 1991.
Austan við ána Dnjestr sem rennur í gegnum landið er héraðið Transnistría þar sem meirihluti íbúa er rússneskumælandi. Transnistría lýsti yfir stofnun sjálfstæðs sovétlýðveldis árið 1990. Moldóva reyndi að leggja héraðið undir sig í stríðinu um Transnistríu en mistókst þar sem héraðið fékk herstyrk frá Rússlandi og Úkraínu. Héraðið er því de facto sjálfstætt þótt alþjóðasamfélagið líti enn á það sem hluta Moldóvu.
Moldóva er dæmigert landbúnaðarland. Þar eru meðal annars stór ræktarlönd með vínþrúgum til vínframleiðslu og rósum fyrir ilmefnaiðnaðinn.