Nayib Bukele
Forseti El Salvador / From Wikipedia, the free encyclopedia
Nayib Armando Bukele Ortez (f. 24. júlí 1981) er salvadorskur stjórnmálamaður og núverandi forseti El Salvador. Hann tók við embætti árið 2019 en hafði áður verið borgarstjóri San Salvador frá 2015 til 2018.
Staðreyndir strax Forseti El Salvador, Varaforseti ...
Nayib Bukele | |
---|---|
Forseti El Salvador | |
Núverandi | |
Tók við embætti 1. júní 2019 | |
Varaforseti | Félix Ulloa |
Forveri | Salvador Sánchez Cerén |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 24. júlí 1981 (1981-07-24) (42 ára) San Salvador, El Salvador |
Þjóðerni | Salvadorskur |
Stjórnmálaflokkur | Nýjar hugmyndir |
Maki | Gabriela Rodríguez (g. 2014) |
Börn | 4 |
Háskóli | Mið-Ameríkuháskóli José Simeón Cañas (útskrifaðist ekki) |
Undirskrift |
Loka
Sem borgarstjóri og sem forseti hefur Bukele náð miklum vinsældum með árangri sínum við að draga úr gengjaofbeldi og lækka morðtíðni í landinu. Aftur á móti hefur hann verið sakaður um einræðiskennda stjórnarhætti og um ofríki gegn gagnrýnendum og stjórnarandstæðingum. Bukele er kunnur talsmaður rafmynta og á forsetatíð hans varð El Salvador fyrsta land í heimi sem gerði bitcoin að lögmiðli.