Skordýr
From Wikipedia, the free encyclopedia
Skordýr (fræðiheiti: Insecta) eru liðdýr í undirfylkingu sexfætla. Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra jarðarinnar með yfir 1.000.000 þekktar tegundir, fleiri en allir aðrir hópar dýra samanlagt. Þau vísindi að rannsaka skordýr kallast skordýrafræði. Fyrstu skordýrin koma fram á svokölluðu Devon-tímabili fyrir um 400 milljónum ára. Þar sem jörðin er 4,5 milljarða að aldri hafa skordýr aðeins verið til staðar á innan við tíunda hluta sögu jarðar. Fyrstu skordýrin voru ófleyg og um tugi milljóna ára voru aðeins til ófleyg skordýr. Fleygu skordýrin koma fram einu jarðsögulegu tímabili seinna, á svokölluðu steinkola-skeiði. Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra jarðarinnar með yfir milljón þekktar tegundir, fleiri en allir aðrir hópar dýra samanlagt. Samanlagður fjöldi skordýrategunda (lifandi og útdauðra) er áætlaður milli sex og tíu milljónir, sem gæti verið allt að 90% allra dýrategunda sem lifað hafa á jörðinni. Skordýr er að finna í nánast hvaða umhverfi sem er, en þó eru þau fá í hafinu—þar eru önnur liðdýr algengari, þ.e. krabbadýr.
Skordýr Tímabil steingervinga: Devontímabilið - Nútími | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||
| ||||||||
Undirflokkar og ættbálkar | ||||||||
| ||||||||