Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1956
From Wikipedia, the free encyclopedia
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1956 var fyrsta söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hún var haldin fimmtudaginn 24. maí í Teatro Kursaal í Lugano í Sviss. Keppnin var skipulögð af Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva (SES) sem samevrópsk tónlistarkeppni. Ítalska tónlistarhátíðin Sanremo var fyrirmynd SES að keppninni. Lohengrin Filipello var gestgjafi þessarar fyrstu söngvakeppni sem var um ein klukkustund og fjörtíu mínútur að lengd. Sjö lönd tóku þátt og hvert þeirra flutti tvö lög. Tveir dómarar frá hverju landi dæmdu lögin leynilega og eftir sínum smekk.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva | |
---|---|
Dagsetningar | |
Úrslit | 24. maí 1956 |
Umsjón | |
Staður | Teatro Kursaal Lugano, Sviss |
Kynnar | Lohengrin Filipello |
Sjónvarpsstöð | RTSI |
Vefsíða | eurovision |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 7 |
Frumraun landa | Belgía Þýskaland |
Kosning | |
Kosningakerfi | Tveir kviðdómarar frá hverju landi kusu leynilega eitt lag. |
Sigurlag | Sviss Refrain - Lys Assia |
Í þessari fyrstu keppni voru nokkrar aðgerðir framkvæmdar sem ekki hafa verið endurteknar í síðan í nokkurri keppni, m.a.; að tvö framlög voru frá hverju landi, eitt land greiddi atkvæði fyrir hönd annars lands og að aðeins einn karlmaður væri kynnir kvöldsins.