Teboðið í Boston
From Wikipedia, the free encyclopedia
Teboðið í Boston (e. Boston Tea Party) er nafn á mótmælaaðgerðum sem sjálfstæðissinnar í bresku nýlendunni Massachusetts stóðu fyrir árið 1773.
Þann 16. desember 1773 safnaðist saman hópur frelsisbaráttumanna við höfnina í Boston, Massachusetts, til þess að mótmæla skattheimtu Breta á nýlendur sínar í Norður-Ameríku. Úr varð að skipsförmum af bresku te var hent í höfnina. Þessi atburður sem síðar hefur verið nefndur The Boston Tea Party hefur verið talinn mikilvægur vendipunktur í frelsisbaráttu Bandaríkjanna.