Thomas Pelham-Holles, hertogi af Newcastle
From Wikipedia, the free encyclopedia
Thomas Pelham-Holles, fyrsti hertoginn af Newcastle upon Tyne og fyrsti hertoginn af Newcastle-under-Lyme, (21. júlí 1693 – 17. nóvember 1768) var breskur stjórnmálamaður úr röð Vigga. Ásamt bróður sínum, Henry Pelham, sat hann við stjórn í Bretlands í um tíu ár. Eftir dauða Henry gerðist Thomas forsætisráðherra Bretlands í sex ár í tvö aðskilin kjörtímabil (1754-1756 og 1757-1762). Stjórnartíð hans var viðburðalítil að mestu en Newcastle hóf þátttöku Bretlands í sjö ára stríðinu, sem leiddi brátt til afsagnar hans. Eftir síðari ráðherratíð sína var hann í stuttan tíma meðlimur í ríkisstjórn Rockingham lávarðar en dró sig síðan úr stjórnmálum.
Staðreyndir strax Hertoginn af Newcastle, Forsætisráðherra Bretlands ...
Hertoginn af Newcastle | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 16. mars 1754 – 16. nóvember 1756 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 2. |
Forveri | Henry Pelham |
Eftirmaður | Hertoginn af Devonshire |
Í embætti 2. júlí 1757 – 26. maí 1762 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 2. Georg 3. |
Forveri | Hertoginn af Devonshire |
Eftirmaður | Jarlinn af Bute |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. júlí 1693 London, Englandi |
Látinn | 17. nóvember 1768 (75 ára) Lincoln's Inn Fields, Middlesex, Englandi |
Þjóðerni | Breskur |
Stjórnmálaflokkur | Viggar |
Maki | Henrietta Godolphin (g. 1718) |
Trúarbrögð | Enska biskupakirkjan |
Háskóli | Clare College, Cambridge |
Undirskrift |
Loka