Vetrarólympíuleikarnir 2006
From Wikipedia, the free encyclopedia
Vetrarólympíuleikarnir 2006 voru haldnir í Tórínó á Ítalíu. Þetta var í annað sinn sem vetrarólympíuleikar eru haldnir á Ítalíu, áður höfðu þeir verið haldnir í Cortina d'Ampezzo árið 1956.
Staðreyndir strax
20. vetrarólympíuleikarnir | |
Bær: | Tórínó, Ítalíu |
Þátttökulönd: | 84 |
Þátttakendur: | 2.508 (1.548 karlar, 960 konur) |
Keppnir: | 84 í 15 greinum |
Hófust: | 10. febrúar 2006 |
Lauk: | 26. febrúar 2006 |
Settir af: | Carlo Azeglio Ciampi |
Íslenskur fánaberi: | Dagný Linda Kristjánsdóttir |
Loka
20.000 sjálfboðaliðar tóku þátt í leikunum og unnu við að taka á móti keppendum, áhorfendum og fjölmiðlum, ásamt því að vinna við keppnisstaðina.
Heilladýr leikanna voru tvö; kvenlegi snjóboltinn Neve og karlmannlega grýlukertið Gliz.