Ásgeir Trausti
Íslenskur tónlistarmaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ásgeir Trausti Einarsson (f. 1. júlí 1992) er íslenskur söngvari og lagahöfundur og átti auk þess feril sem söngvari með hljómsveitum eins og The Lovely Lion.
Ásgeir Trausti | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Ásgeir Trausti Einarsson 1. júlí 1992 (1992-07-01) (31 árs) |
Uppruni | Laugarbakki, Ísland |
Störf |
|
Ár virkur | 2012 – í dag |
Stefnur | |
Hljóðfæri |
|
Útgefandi |
|
Vefsíða | asgeirmusic |
Á íslensku tónlistarverðlaununum 2013 hlaut hann fern verðlaun, fyrir plötu ársins; Dýrð í dauðaþögn, sem bjartasta vonin, vinsælasti flytjandinn og netverðlaun tónlist.is.[1]
Ásgeir Trausti hélt tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu 16. júní 2015. Það seldist upp á báða tónleikana. Hann hefur farið í tónleikaferðir utan landsteinanna og þar á meðal til Ástralíu.
Ásgeir gaf út plötuna Dýrð í dauðaþögn á ensku undir heitinu In the Silence þar sem bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant aðstoðaði við textagerð. Árið 2017 hélt Ásgeir áfram að gefa út efni á ensku með plötunni Afterglow sem var með meiri raftónlistaráherslum. Hann vék sér að fyrri stíl með plötunni Sátt/Bury the Moon sem bæði var gefin út á ensku og íslensku árið 2020.