Ástralía
Land í Eyjaálfu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ástralía eða Samveldið Ástralía (enska Commonwealth of Australia eða Australia) er land í heimsálfunni Eyjaálfu, sem einnig heitir Ástralía. Ástralía er eina ríki heims sem nær yfir heilt meginland. Landið er í Breska samveldinu og er konungur Bretlands, Karl 3., jafnframt konungur Ástralíu. Ástralía skiptist í sex fylki og tvö svæði, hvert með sína höfuðborg. Fjölmennasta borg Ástralíu er Sydney.
Staðreyndir strax
Samveldið Ástralía | |
Commonwealth of Australia | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Advance Australia Fair | |
Höfuðborg | Canberra |
Opinbert tungumál | Enska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Karl 3. |
Landstjóri | David Hurley |
Forsætisráðherra | Anthony Albanese |
Sjálfstæði | frá Bretlandi |
• Sambandsríki | 1. janúar 1901 |
• Samþykkt Westminster-laganna | 9. október 1942 |
• Ástralíulögin | 3. mars 1986 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
6. sæti 7.692.024 km² 1,79 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
53. sæti 25.814.400 3,4/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 1.416 millj. dala (18. sæti) |
• Á mann | 54.891 dalir (17. sæti) |
VÞL (2019) | 0.944 (8. sæti) |
Gjaldmiðill | Dalur (AUD) |
Tímabelti | UTC+8 til +10 |
Ekið er | vinstra megin |
Þjóðarlén | .au |
Landsnúmer | +61 |
Loka