Ítalska karlalandsliðið í knattspyrnu
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ítalska landsliðið heyrir undir ítalska knattspyrnusambandið, sem var sett á stofn árið 1898. Það gerðist meðlimur í FIFA árið 1905. Fyrsti landsleikurinn hjá Ítölum var þó ekki spilaður fyrr en fimm árum seinna.
Gælunafn | Gli Azzurri (Þeir bláu) La Nazionale (Landsliðið) | |||
---|---|---|---|---|
Íþróttasamband | Federazione Italiana Giuoco Calcio, FIGC | |||
Álfusamband | UEFA | |||
Fyrirliði | Leonardo Bonucci | |||
FIFA sæti Hæst Lægst | 8 (22. des. 2022) 1 (1993, 2007) 21 (Ágúst 2018) | |||
| ||||
Fyrsti landsleikur | ||||
6-2 gegn Frakklandi 15. maí 1910 | ||||
Stærsti sigur | ||||
9–0 gegn Bandaríkjunum 2. ágúst 1948 | ||||
Mesta tap | ||||
7–1 gegn Ungverjum 6. apríl 1924 | ||||
Keppnir | (fyrst árið 1930) | |||
Besti árangur | Heimsmeistarar 1934, 1938, 1982, 2006 | |||
Besti árangur | Evrópumeistarar 1968 og 2021 |
Ítalía hefur tekið þátt í 17 HM keppnum. Fjórum sinnum hefur það orðið heimsmeistarar, það var 1934, 1938, 1982 og árið 2006. Ítalia hefur unnið næst flestar heimsmeistarakeppnir á eftir Brasilíumönnum. Einungis Þýskaland hefur spilað fleiri úrslitaleiki en Ítalir, Brasilíumenn hafa spilað jafnmarga úrslitaleiki og Ítalir. Ítalía hefur tvisvar unnið Evrópumótið í knattspyrnu árin 1968 og 2021, og tvisvar spilað til úrslita, árið 2000 og 2012.
Ítalir hafa nokkrum sinnum spilað við Ísland, frægasti leikurinn var sennilega árið 2004 þegar vallarmet var slegið í mætingu á Laugardalsvelli en á þeim leik voru áhorfendur alls 20.204.
Árið 2021 var liðið taplaust í 37 leikjum og sló met Spánar í tapleysi landsliðs. Loks tapaði það fyrir Spáni í undanúrslitum þjóðadeildarinnar. Ítalía vann EM 2020 en komst ekki inn á HM 2022.