Kenning um réttlæti
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kenning um réttlæti (e. A Theory of Justice) er rit um stjórnmálaheimspeki og siðfræði eftir bandaríska heimspekinginn John Rawls. Það kom fyrst út árið 1971 en endurskoðuð útgáfa kom út árið 1999. Þegar ritið kom fyrst út olli það fjaðrafoki í heimspeki og blés nýju lífi í stjórnspekina.
Í Kenningu um réttlæti reynir Rawls að lesa vandann um réttláta dreifingu takmarkaðra gæða með kenningu sem byggði á vel þekktri hugmynd um samfélagssáttmálann. Kenning Rawls er þekkt sem kenningin um „réttlæti sem sanngirni“ og telur Rawls réttlætið vera fólgið í ýtrustu mannréttindum annars vegar og jöfnuði hins vegar.