Abidjan
From Wikipedia, the free encyclopedia
Abidjan er stærsta borg Fílabeinsstrandarinnar og fyrrum höfuðborg. Núverandi höfuðborg er Yamoussoukro. Borgin er fjórða stærsta frönskumælandi borg heims, á eftir París, Kinshasa og Montréal. Einkenni Abidjan er mikill iðnaður og dreifbýli. Borgin er í Ebrié-lóninu á eyrum og eyjum sem eru tengdar með brúm. Aðalútfutningsvörur frá borginni eru kaffi, kakó, timbur, bananar, ananas og pálma- og fiskafurðir. Árið 2021 var talið að íbúar borgarinnar væru um 46,3 milljónir.
Borgin stækkaði eftir byggingu nýrrar bryggju árið 1931 og á þeim tíma sem borgin varð höfuðborg, árið 1933. Bygging Viridi skipaskurðsins 1951 opnaði fyrir möguleika borgarinnar að verða að hafnarborg. Árið 1983 var Yamoussoukro valin sem höfuðborg landsins, en flestar skrifstofur ríkisins og sendiráð eru enn í Abidjan.