Amelia Earhart
bandarískur flugmaður (1897-1939) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Amelia Earhart (fæddist 24. júlí 1897, tilkynnt látin 5. janúar 1939) var flugmaður sem setti fjölmörg met innan fluggeirans. Hún var fyrst kvenna til að fljúga yfir Atlantshafið og önnur í heiminum til þess að fljúga einsömul yfir það. Hún skrifaði bækur um afrek sín og stofnsetti Samtökin 99 sem voru samtök kvenna með flugmannsréttindi. Hún gerði tilraun til þess að fljúga fyrst kvenna kringum hnöttinn en hún týndist 2. júlí 1937 nálægt Howlandeyju í Kyrrahafinu ásamt siglingafræðingnum Fred Noonan og ekkert hefur spurst til þeirra síðan.