Atlantshafsbandalagið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Atlantshafsbandalagið (einnig NATÓ eftir enskri skammstöfun á nafni þess: North Atlantic Treaty Organisation eða OTAN eftir franskri skammstöfun á heiti þess, (l'Organisation du traité de l'Atlantique nord)) er hernaðarbandalag. Skrifað var undir stofnsáttmála bandalagsins í Washington D.C. 4. apríl 1949.
Atlantshafsbandalagið North Atlantic Treaty Organization Organisation du traité de l'Atlantique nord | |
---|---|
Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins (2020) sjást hér grænlituð. | |
Skammstöfun | NATO (enska); OTAN (franska) |
Einkennisorð | Animus in consulendo liber |
Stofnun | 4. apríl 1949; fyrir 75 árum (1949-04-04) |
Gerð | Hernaðarbandalag |
Höfuðstöðvar | Brussel, Belgíu |
Meðlimir | |
Opinber tungumál | Enska, franska |
Framkvæmdastjóri | Jens Stoltenberg |
Yfirmaður hermálanefndarinnar | Rob Bauer |
Yfirmaður Evrópuherstjórnarinnar | Christopher G. Cavoli |
Yfirmaður herstjórnarmiðstöðvarinnar | Philippe Lavigne |
Vefsíða | www.nato.int |
Kjarni bandalagsins er 5. grein stofnsáttmálans þar sem því er lýst yfir að árás á eitt bandalagsríki í Evrópu eða Norður-Ameríku jafngildi árás á þau öll. Sú grein var hugsuð til að gera Sovétríkjunum það ljóst að innrás inn í Vestur-Evrópu jafngilti stríðsyfirlýsingu við Bandaríkin og allan hernaðarmátt þeirra. Á móti stofnuðu Sovétríkin ásamt bandamönnum sínum í Austur-Evrópu Varsjárbandalagið. Hernaðarbandalögin tvö léku síðan aðalhlutverk í Kaldastríðinu og því vígbúnaðarkapphlaupi og kjarnorkuvopnavæðingu sem einkenndu það. Innrás Sovétmanna í Vestur-Evrópu varð aldrei að veruleika og 5. grein NATO-samningsins hefur aðeins verið notuð einu sinni en það var 12. september 2001 eftir hryðjuverkaárás á Bandaríkin.