Austur-Tímor
ríki í Suðaustur-Asíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Austur-Tímor eða Tímor-Leste er ríki í Suðaustur-Asíu. Það nær yfir eystri hluta eyjunnar Tímor, sem er stærst Litlu-Sundaeyja, útlenduna Oecussi-Ambeno á Vestur-Tímor (sem tilheyrir Indónesíu) og eyjarnar Atauro og Jaco. Landið hét áður Portúgalska Tímor þar til Indónesar réðust inn í landið árið 1975. Þeir héldu því til 1999 þegar landið fékk sjálfstjórn með fulltingi Sameinuðu þjóðanna. Landið fékk svo fullt sjálfstæði þann 20. maí 2002.
Lýðstjórnarlýðveldið Tímor-Leste | |
Repúblika Demokrátika Timor Lorosa'e República Democrática de Timor-Leste | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Unidade, Acção, Progresso (portúgalska) Eining, aðgerðir, framfarir | |
Þjóðsöngur: Pátria | |
Höfuðborg | Dili |
Opinbert tungumál | tetum, portúgalska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | José Ramos-Horta |
Forsætisráðherra | Xanana Gusmão |
Sjálfstæði | frá Portúgal |
• Viðurkennt | 28. nóvember 1975 |
• Endurheimt | 20. maí 2002 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
154. sæti 15.007 km² ~0 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
153. sæti 1.340.513 78/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 5,315 millj. dala (180. sæti) |
• Á mann | 4.031 dalir (193. sæti) |
VÞL (2019) | 0.606 (141. sæti) |
Gjaldmiðill | bandaríkjadalur |
Tímabelti | UTC+9 |
Þjóðarlén | .tp |
Landsnúmer | +670 |
Portúgalir stofnuðu verslunarstaði á Tímor á 16. öld einkum vegna þess hve þar óx mikið af sandalviði. Nýlendan Portúgalska Tímor var stofnuð árið 1769 þegar Portúgalir stofnuðu borgina Dili. Alþjóðadómstóllinn í Haag staðfesti landamærin milli Portúgalska Tímor og vesturhlutans sem Hollendingar réðu yfir árið 1914. Í kjölfar Nellikubyltingarinnar í Portúgal árið 1974 hurfu Portúgalir frá nýlendunni sem leiddi til borgarastyrjaldar. Annar stríðsaðilinn, Fretilin, lýsti yfir stofnun sjálfstæðs ríkis 28. nóvember 1975. Indónesía gerði innrás í desember sama ár og lýsti Austur-Tímor 27. hérað Indónesíu í júlí árið eftir. Ofbeldi og kúgun einkenndu hernám Austur-Tímor og skæruliðahreyfingin Falintil barðist gegn hernámsliðinu allt til 1999. Blóðbaðið í Dili árið 1991 varð til þess að alþjóðasamfélagið snerist gegn Indónesíu og eftir fall Suhartos árið 1998 var ákveðið að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Austur-Tímor undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna. Sjálfstæði Austur-Tímor gekk formlega í gildi árið 2002.
Austur-Tímor er annað tveggja landa í Asíu þar sem meirihluti íbúa er kaþólskrar trúar. Um helmingur landsmanna er ólæs og 37,4% landsmanna eru undir alþjóðlegum fátæktarmörkum. Efnahagur Austur-Tímor hefur þó vaxið hratt undanfarin ár. Helstu útflutningsafurðir landsins eru olía og gas, auk kaffis.