Bandý
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bandý er innanhúss hóp- og boltaíþrótt spiluð með plastkylfum þar sem markmiðið er að koma lítilli plastkúlu (kölluð bandýkúla) í mark andstæðingsins. Í bandý eru sex menn í liði, þar af einn markmaður og hafa þeir allir fyrir utan markmanninn kylfu til að stjórna og skjóta kúlunni, en markmaðurinn ver markið með höndum og fótum. Leikmenn mega ekki viljandi nota hendur eða höfuð til að stjórna kúlunni, en leyfilegt er að snerta hana einu sinni í einu með fótunum (oftast til að stoppa hana), en ekki má skora mörk með fótunum eða gefa kúluna með þeim. Núverandi Íslandsmeistari í bandý er Bandýfélag Kópavogs.