Borís Jeltsín
1. forseti Rússlands (1931-2007) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Borís Níkolajevítsj Jeltsín (rússneska: Борис Николаевич Ельцин) (1. febrúar 1931 – 23. apríl 2007) var fyrsti forseti Rússlands frá 1991 til 1999. Hann átti þátt í að leiða mótmæli gegn valdaránstilraun harðlínumanna gegn Míkhaíl Gorbatsjov 18. ágúst 1991 sem leiddi til falls Sovétríkjanna. Í forsetatíð hans var reynt að koma á nauðsynlegum efnahagsumbótum og innleitt markaðshagkerfi sem leiddi til óðaverðbólgu. Jeltsín og nánir samstarfsmenn hans voru auk þess ásakaðir fyrir víðtæka spillingu. Á þeim tíma náðu ólígarkarnir öllum völdum í viðskiptalífi landsins. Árið 1999 gerði hann Vladímír Pútín að forsætisráðherra og lýsti því yfir að hann vildi að Pútín yrði eftirmaður sinn. Þann 31. desember sagði hann svo af sér og Pútín tók við embættinu fram að forsetakosningum 26. mars 2000 þar sem hann sigraði í fyrstu umferð. Hann lést 23. apríl 2007, 76 ára að aldri.
Borís Jeltsín Борис Ельцин | |
---|---|
Forseti Rússlands[lower-alpha 1] | |
Í embætti 10. júlí 1991 – 31. desember 1999 | |
Forsætisráðherra | Listi
|
Varaforseti | Aleksandr Rútskoj (1991–1993) |
Eftirmaður | Vladímír Pútín |
Forseti Æðstaráðs rússneska sovétlýðveldisins | |
Í embætti 29. maí 1990 – 10. júlí 1991 | |
Forveri | Vítalíj Vorotníkov (sem forseti forsætisnefndar Æðstaráðsins) |
Eftirmaður | Rúslan Khasbúlatov |
Aðalritari flokksnefndar Kommúnistaflokksins í Moskvu | |
Í embætti 23. desember 1985 – 11. nóvember 1987 | |
Forveri | Víktor Gríshín |
Eftirmaður | Lev Zajkov |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 1. febrúar 1931 Bútka, Sverdlovsk, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Látinn | 23. apríl 2007 (76 ára) Moskvu, Rússlandi |
Dánarorsök | Hjartaáfall |
Þjóðerni | Rússneskur |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn (eftir 1991) Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna (1961–1990) |
Maki | Naína Jeltsína (g. 1956) |
Börn | 2 |
Starf | Forseti |
Þekktur fyrir | Fyrsti forseti Rússlands eftir fall Sovétríkjanna |
Undirskrift |