Chicago
Borg í Illinois í Bandaríkjunum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Chicago, stundum ritað Síkagó, er stórborg í miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Hún er þriðja fjölmennasta borg landsins, með 2,7 milljónir íbúa árið 2017. Hún stendur á suðvesturströnd Michiganvatns og er stærsta borgin í fylkinu Illinois. Stór-Chicago svæðið, almennt þekkt sem Chicagoland hefur um 9,5 milljón íbúa (2015) skipt niður á fylkin Illinois, Wisconsin og Indiana og þar með er það þriðja stærsta borgarsvæði Bandaríkjanna.
Chicago | |
---|---|
Land | Bandaríkin |
Fylki | Illinois |
Stofnun | Um 1780 |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Brandon Johnson (D) |
Flatarmál | |
• Samtals | 606,60 km2 |
Mannfjöldi (2019) | |
• Samtals | 2.693.976 |
• Þéttleiki | 4.573,98/km2 |
Svæðisnúmer | 312/872 og 773/872 |
Tímabelti | UTC -6 (-5 á sumrin) |
Vefsíða | www.chicago.gov |
Chicago er í Cook sýslu sem hefur 5.2 milljónir íbúa (árið 2017) og er þar með næstfjölmennasta sýsla Bandaríkjanna. Borgin liggur meðfram suðvesturströnd Michiganvatns og er mikilvæg miðstöð samgangna, iðnaðar, stjórnmála, menningar, fjármála, lyfjaiðnaðar og menntunar.
Borgin var stofnuð árið 1833 á hafnarstæðinu milli Vatnanna miklu og Mississippifljóts. Brátt varð hún samgöngumiðstöð Norður Ameríku. Árið 1893 var borgin valin ein af tíu áhrifamestu borgum heims.