Copa del Rey
From Wikipedia, the free encyclopedia
Copa del Rey eða spænski konungsbikarinn er elsta knattspyrnukeppni Spánar sem enn er haldin, stofnuð árið 1903 á grunni Krýningarbikarsins sem keppt var um árið áður. Fram að stofnun spænsku deildarkeppninnar árið 1928 var Copa del Rey helsta knattspyrnukeppni Spánar. FC Barcelona er sigursælasta félagið í sögu keppninnar með 31 titil, Athletic Bilbao, sem eru ríkjandi meistarar (2024) hafa unnið 24 sinnum og Real Madrid 20 sinnum. Sigurvegarar í Copa del Rey fá þátttökurétt í Evrópudeild UEFA.