Davíð Oddsson
ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra / From Wikipedia, the free encyclopedia
Davíð Oddsson (fæddur 17. janúar 1948) er íslenskur lögfræðingur, smásagnahöfundur, leikskáld, textahöfundur, fyrrverandi stjórnmálamaður og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins.[1] Davíð er einn sigursælasti og vinsælasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar, en hefur verið umdeildur.[2][3] Hann var borgarstjóri Reykjavíkur frá 1982 til 1991, forsætisráðherra Íslands frá 1991 til 2004, utanríkisráðherra Íslands frá 2004 til 2005, seðlabankastjóri frá 2005 til 2009 og hefur verið ritstjóri Morgunblaðsins frá 2009. Davíð var formaður Sjálfstæðisflokksins frá 1991 til 2005.
Staðreyndir strax Fæðingardagur:, Fæðingarstaður: ...
Davíð Oddsson | |
Davíð árið 2003 | |
Fæðingardagur: | 17. janúar 1948 (1948-01-17) (76 ára) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Flokkur: | Sjálfstæðisflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
1991-2003 | í Reykv. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2003-2005 | í Reykv. n. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1982-1991 | Borgarstjóri í Reykjavík |
1991-2004 | Forsætisráðherra |
2004-2005 | Utanríkisráðherra |
2005-2009 | Seðlabankastjóri |
2009- | Ritstjóri Morgunblaðsins |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Loka
Davíð bauð sig fram til forseta í forsetakosningunum 2016 og fékk þar 13,7% atkvæða og varð í fjórða sæti í kjörinu.