Diana Rigg
Bresk leikkona (1938-2020) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Dame Enid Diana Elizabeth Rigg (20. júlí 1938 – 10. september 2020) var bresk leikkona. Rigg varð fræg á sjöunda áratugnum fyrir að leika njósnarann Emmu Peel í sjónvarpsþáttunum The Avengers (ísl. Skelegg skötuhjú), en þar birtist hún í fjórðu og fimmtu þáttaröðunum og lék annað aðalhlutverkið á móti Patrick Macnee. Hún varð einnig þekkt fyrir að leika Bond-stúlkuna Tracy di Vicenzo í James Bond-myndinni On Her Majesty's Secret Service árið 1969. Á eldri árum varð Rigg þekkt fyrir að leika persónuna Olennu Tyrell í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones. Allan feril sinn hafði Rigg verið virk sem sviðsleikkona og lék í fjölda sýninga Konunglega Shakespeare-félagsins.
Diana Rigg | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | Enid Diana Elizabeth Rigg 20. júlí 1938 Doncaster, Englandi |
Dáin | 10. september 2020 (82 ára) London, Englandi |
Ár virk | 1957–2020 |
Maki | Menachem Gueffen (g. 1973; sk. 1976) Archie Stirling (g. 1982; sk. 1990) |
Börn | Rachael Stirling |
Helstu hlutverk | |
|
Árið 1994 sæmdi Elísabet 2. Bretadrottning Rigg riddaranafnbót í Orðu breska heimsveldisins.