Egilsstaðir
þéttbýlisstaður sunnan Lagarfljóts á Fljótsdalshéraði á Austfjörðum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Egilsstaðir er þéttbýlisstaður sunnan Lagarfljóts á Fljótsdalshéraði, skammt frá Lagarfljótsbrú. Frá miðri 20. öld hefur bærinn þróast hratt sem helsta verslunar- og þjónustumiðstöð Austurlands, enda mætast þar þjóðvegir úr öllum áttum. Þar búa um 3000 manns (2023).