Eldey
eyja utan við Ísland / From Wikipedia, the free encyclopedia
- Eldey er líka íslenskt kvenmannsnafn.
Eldey er klettadrangur um 15 km suðvestan við Reykjanes sem er 77 metra hár. Eldey er þverhnípt og illkleif á alla vegu og er úr lagskiptu móbergi. Á Eldey er mikill súlubyggð, og árið 1844 var síðasti geirfuglinn drepinn þar vegna áhuga safnara á að eignast uppstoppað eintak. Eldey var friðuð árið 1940 og síðan lýst friðland árið 1974 samkvæmt náttúruverndarlögum.