Enska úrvalsdeildin
From Wikipedia, the free encyclopedia
Enska úrvalsdeildin er efsta atvinnumannadeildin í knattspyrnu á Englandi (og Wales). Hún er vinsælasta deild í heimi og einnig sú arðbærasta. Henni er sjónvarpað til 212 landa og svæða til um 650 milljón heimila. Tímabil deildarinnar er frá ágúst og fram í maí, liðin eru 20 og eru alls 38 leikir á lið. Neðstu þrjú liðin falla í lok tímabils og þrjú lið koma í staðinn á næsta tímabili úr ensku meistaradeildinni. Meðaltal áhorfenda á leikjum er 36.000 sem er það annað mesta í heiminum á eftir þýsku Bundesliga.
Staðreyndir strax Stofnuð, Land ...
Stofnuð | 20. febrúar 1992; fyrir 32 árum (1992-02-20) |
---|---|
Land | England |
Álfusamband | UEFA |
Fjöldi liða | 20 |
Stig á píramída | 1 |
Fall í | EFL Championship |
Staðbundnir bikarar |
|
Deildarbikarar | EFL Cup |
Alþjóðlegir bikarar | |
Núverandi meistarar | Manchester City (8. titill) (2023–24) |
Sigursælasta lið | Manchester United (13 titlar) |
Leikjahæstu menn | Gareth Barry (653) |
Markahæstu menn | Alan Shearer (260) |
Sýningarréttur |
|
Vefsíða | premierleague.com |
Loka