Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
From Wikipedia, the free encyclopedia
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (enska: United Nations High Commissioner for Refugees) er stofnun innan Sameinuðu þjóðanna sem veitir flóttamönnum heims vernd og aðstoð. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna stofnaði Flóttamannastofnunina árið 1950 og höfuðstöðvar hennar eru í Genf í Sviss. Upphaflega var tilgangur stofnunarinnar sá að aðstoða flóttamenn í Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina.
Staðreyndir strax Skammstöfun, Stofnun ...
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna | |
---|---|
Skammstöfun | UNHCR |
Stofnun | 1950; fyrir 74 árum (1950) |
Höfuðstöðvar | Genf, Sviss |
Framkvæmdastjóri | Filippo Grandi (síðan 2016[1]) |
Móðurfélag | Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna Efnahags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna |
Vefsíða | www.unhcr.org |
Loka