Flórens (sýsla)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sýslan Flórens (ítalska: Provincia di Firenze) er sýsla í Toskanahéraði á Mið-Ítalíu. Upphaflega innihélt sýslan einnig borgina Prató, en 1990 var búin til sérstök sýsla fyrir hana. Íbúar sýslunnar eru um 1.007.252 (31. des 2013) talsins í 42 sveitarfélögum. Af þeim búa 368.059 í höfuðstaðnum Flórens.