Sófistar
forngrískir viskukennarar (á 5. öld f.Kr.) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sófistar (forngríska: σοφιστής, sofistēs) eða fræðarar voru viskukennarar og róttæklingar í Grikklandi til forna. Hugtakið er dregið af gríska lýsingarorðinu σοφός, sofos, sem merkir „vitur“. Sófistar ferðuðust borga á milli og héldu námskeið og þénuðu sumir vel á kennslunni. Þeir voru sannfærðir um að margt sem talið var heilagt að gömlum sið og talið liggja í eðli hluta væri í raun merki um mannlega hagsmuni og árangur af mannlegum ákvörðunum. Þeir gagnrýndu kynþáttafordóma, þrælahald og kvennakúgun. Hafa ber í huga að sófistarnir voru sundurleitur hópur sem hafði ólíkar skoðanir um margt.