Fylkið
Bandarísk-áströlsk kvikmynd frá 1999 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fylkið (upphafleg þýðing: Draumaheimurinn; enska: The Matrix) er kvikmynd sem var fyrst sýnd í kvikmyndahúsum 31. mars 1999. Hún naut strax mikillar hylli og er í dag talin á meðal bestu vísindaskáldskaparkvikmynda sem framleiddar hafa verið. Myndin fjallar í megindráttum um efni sem lengi hefur verið kvikmyndagerðarmönnum hugleikið, þ.e. hvernig það væri ef vélarnar myndu stjórna mannkyninu. Myndina má flokka sem vísindaskáldskap, með tilvísunum í japanskar teiknimyndir, myndasögur, kung-fu-myndir, trúarlegar hugmyndir og heimspeki.
- Þessi grein fjallar um kvikmyndina „Fylkið“, en getur einnig átt við hugtak í stærðfræði og stjórnsýslueiningu.
Staðreyndir strax Fylkið, Leikstjóri ...
Fylkið | |
---|---|
The Matrix | |
Leikstjóri | Lilly Wachowski Lana Wachowski |
Handritshöfundur | Lilly Wachowski Lana Wachowski |
Framleiðandi | Joel Silver |
Leikarar | Keanu Reeves Laurence Fishburne Carrie-Anne Moss Hugo Weaving |
Frumsýning | 31. mars, 1999 25. júní, 1999 |
Lengd | 136 mín. |
Tungumál | enska |
Aldurstakmark | R 16 |
Ráðstöfunarfé | $63,000,000 |
Framhald | The Matrix Reloaded |
Loka