Grettir Ásmundarson
persóna úr Íslendingasögunum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Grettir sterki Ásmundarson eða Grettir sterki er aðalpersóna Grettis sögu. Hann var mikill óeirðarmaður og skapstór. Í sögunni er honum svo lýst að hann hafi verið „ódæll í uppvexti sínum, fátalaður og óþýður, bellinn bæði í orðum og tiltektum ... fríður maður sýnum, breiðleitur og skammleitur, rauðhærður og næsta freknóttur, ekki bráðger meðan hann var á barnsaldri“.