Grígoríj Zínovjev
Sovéskur byltingarmaður (1883-1936) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Grígoríj Jevsejevítsj Zínovjev (rússneska: Григорий Евсеевич Зиновьев), fæddur undir nafninu Ovsej-Gershon Aronovítsj Radomyslskíj (rússneska: Овсей-Гершон Аронович Радомысльский; 23. september 1883 – 25. ágúst 1936) var sovéskur byltingarmaður og stjórnmálamaður. Hann var einn gömlu bolsévikanna og náinn samstarfsmaður Vladímírs Lenín. Zínovjev var einn af valdamestu mönnum Sovétríkjanna á þriðja áratugnum og var jafnframt fyrsti formaður Alþjóðasambands kommúnista.
Grígoríj Zínovjev Григорий Зиновьев | |
---|---|
Formaður Alþjóðasamtaka kommúnista | |
Í embætti 2. mars 1919 – 22. nóvember 1926 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Níkolaj Búkharín |
Formaður Pétursborgarsovétsins | |
Í embætti 13. desember 1917 – 26. mars 1926 | |
Forveri | Lev Trotskíj |
Eftirmaður | Embætti lagt niður |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 23. september 1883 Jelízavetgrad, rússneska keisaradæminu (nú Kropyvnytskyj, Úkraínu) |
Látinn | 25. ágúst 1936 (52 ára) Moskvu, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Dánarorsök | Tekinn af lífi fyrir skotsveit |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna (1918–1927, 1928–1932, 1933–1934) Sósíaldemókrataflokkur Rússlands (Bolsévikar) (1901–1918) |
Eftir dauða Leníns myndaði Zínovjev þremenningabandalag með Lev Kamenev og Jósef Stalín sem fór með mest völd á næstu árum. Þeir unnu saman að því að jaðarsetja sameiginlegan keppinaut þeirra, Lev Trotskíj, en bandalagi þeirra lauk eftir að Trotskíj var gerður brottrækur. Í kjölfarið tókst Stalín að ryðja Zínovjev og Kamenev til hliðar og reka þá úr Kommúnistaflokknum.
Á tíma hreinsana Stalíns á fjórða áratugnum var Zínovjev handtekinn og sakaður um landráð. Hann sakfelldur í Moskvuréttarhöldunum og tekinn af lífi af skotsveit þann 25. ágúst 1938.