Hamfarirnar í Japan 2011
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hamfarirnar í Japan 2011 urðu vegna jarðskjálfta upp á 9,0 á Richter. Jarðskjálftinn varð klukkan 14:45 að japönskum staðartíma á föstudeginum 11. mars 2011.[2] [3][5] Skjálftamiðja hans var úti á hafi, 130 kílómetrum austur af borginni Sendai[2].
Hamfarirnar í Japan 2011 | |
---|---|
Dagsetning | 14:46:23, 11. Mars 2011 (+09:00) |
Tímalengd | 6 mínútur[1] |
Stærð | 9.0 Mw[2][3] |
Dýpt | 32 km |
Áhrifasvæði skjálftans | Japan (helsta áhrifasvæði) Lönd með landamæri að Kyrrahafinu (flóðbylgja) |
Skemmdir alls | Flóðbylgja, flóð, skriða, eldar, skemmdir á mannvirkjum og kjarnorkuslys með losun geislunnar |
Jarðskjálftahröðun | 2.99 g |
Flóðbylgja | Já (10+ metrar) |
Ofanflóð | Já |
Fyrirskjálftar | 7+ (4 af þeim yfir 6.0 MW) |
Eftirskjálftar | 875-876+ (57–58+ þeirra yfir 6.0 MW) |
Mannsföll | 19.747 dánir[4] |
Jarðskjálftinn orsakaði flóðbylgju, allt að 29,6 metra háa,[6] sem lenti á Japan mínútum eftir skjálftann og flæddi allt að 10 km inn af landinu. [7] Jarðskjálftinn orsakaði einnig smærri flóðbylgjur sem lentu á öðrum löndum eftir nokkra klukkutíma. Viðvaranir voru gefnar út fyrir strönd Japans sem liggur að Kyrrahafinu og fyrir í það minnsta 20 önnur lönd, þar á meðal Kyrrahafströnd Norður og Suður Ameríku[8][9][10].
Japanska lögreglan staðfesti opinberlega 19.747 dána[4] í 18 héruðum, ásamt 125.000 skemmdum eða eyðilögðum byggingum.[4] Jarðskjálftinn og flóðbylgjan orsakaði miklar mannvirkjaskemmdir í Japan, meðal annars á vegum, járnbrautum og eldsvoðum, ásamt eyðilagðrar stíflu.[7][11] Í kringum 4,4 milljónir heimila í Japan voru án rafmagns og 1,5 milljónir án vatns [12]. Slökkt var á mörgum raföllum og í það minnsta þrír kjarnaofnar urðu fyrir sprengingum vegna þrýstings vetnis gass sem hafði safnast saman í ytri lokum eftir kerfisbilun.[13] Íbúar innan 20 km radíus í kringum Fukushima 1 kjarnorkuverið og innan 10 km radíus í kringum Fukushima 2 kjarnorkuverið voru brottfluttir.[14]