Hindí
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hindí er indóarískt tungumál talað á norður- og mið-Indlandi og er staðlað málsnið af hindí-úrdú. Hindí er ríkismál á Indlandi ásamt ensku. Af mállýskum má nefna hindústaní, kraj, kanújí, búndelí, bangarú, avadí, baqelí og sjatisqarbí. Hindí er það tungumál á Indlandi sem flestir eiga að móðurmáli. Stjórnlagaráð Indlands samþykkti 14. september 1949 að hindí í Devanagarí-ritkerfinu skyldi vera opinbert tungumál lýðveldisins Indlands.
Staðreyndir strax Hindí हिन्दी, Opinber staða ...
Hindí हिन्दी | ||
---|---|---|
Málsvæði | Indland | |
Heimshluti | Suður-Asía | |
Fjöldi málhafa | Óvíst; 322 milljónir hindí-úrdú-mælenda nefndu hindí sem sitt mál árið 2011. | |
Ætt | Indóevrópskt Indóíranskt Indóarískt | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Indland. | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | hi | |
ISO 639-2 | hin | |
SIL | hin | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Loka