Hinrik 4. keisari
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hinrik IV (11. nóvember 1050 í Goslar – 7. ágúst 1106 í Liége) var konungur og keisari þýska ríkisins af Salier-ættinni. Hann þótti einn umdeildasti keisari miðalda og ríkti í hartnær hálfa öld, lengur en nokkur annar þjóðhöfðingi síns tíma. Hinrik er sennilega þekktastur fyrir deilur sínar við Gregoríus VII páfa og iðrunarferð sína til Canonssa.